Húnvetnska liðakeppnin í sjötta sinn

Húnvetnska liðakeppnin verður haldin í sjötta sinn í vetur og mun keppnin fara fram í reiðhöllinni á Hvammstanga, Þytsheimum. Öll árin nema í fyrra hafa fjögur lið tekið þátt í keppninni en í fyrra voru liðin bara þrjú.

„Margt hefur gerst í kringum keppnina, fólk er að plotta fram að hverju móti og mikið grín og glens hefur fylgt keppninni, allt frá því að keppa á röngum hesti í að stela liðsfélögum úr öðrum liðum,“ sagði Kolbrún Stella Indriðadóttir, þegar Feykir hafði samband við hana til að forvitnast um form keppninnar.

„Breytingar hafa orðið í fyrsta skipti frá upphafi á mótanefnd liðakeppninnar og mun ný nefnd funda í byrjun janúar og kynna breytingar sínar ef einhverjar verða, um miðjan janúar,“ sagði Kolbrún ennfremur.

Komnar eru dagssetningar fyrir mót vetrarins og eru þær eftirfarandi:
8. febrúar: fjórgangur
22. febrúar: smali/skeið
15. mars: fimmgangur/tölt
5. apríl: tölt

Reglur keppninnar er að finna hér.

 

Fleiri fréttir