Húnvetnskar fréttir á N4

Norðlenska sjónvarpsstöðin N4 hefur sýnt fréttainnslög úr Húnavatnssýslum í þáttunum Að norðan og eru þeir aðgengileg á vef sjónvarpsstöðvarinnar. Í síðustu þáttum hefur verið fjallað um dreifnám FNV á Hvammstanga, Verslunina Hlín á Hvammstanga, Leirhús Grétu á Litla-Ósi, Skólabúðirnar að Reykjum og um hitaveitu á Skagaströnd. Samantektin hér að neðan er fengin af vef Húnahornsins.

Rætt er við Rakel Runólfsdóttur, umsjónarmann dreifnáms Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra og segja nemendurnir Guðrún Helga Magnúsdóttir og Ragnar Bragi Ægisson frá því hvernig námið gengur fyrir sig. Fréttainnslagið má sjá hér.

Verslunin Hlín á Hvammstanga er heimsótt og rætt við Dagbjörtu Jónsdóttur, verslunareiganda, um tilurð og ástæða þess að hún fór út í verslunarrekstur á Hvammstanga. Fréttainnslagið má sjá hér.

Farið er í heimsókn í Leirhús Grétu á Litla-Ósi og rætt við Grétu Jósefsdóttur, handverkskonu. Fylgst er með henni þar sem hún býr til kindur úr leir. Fréttainnslagið má sjá hér.

Farið er í Skólabúðirnar að Reykjum og rætt við Karl Örvarsson staðarhaldara og Sigmund Sigmundsson leiðbeinanda. Fréttainnslagið má sjá hér.

Þá er fjallað um að Skagstrendingar séu nú loksins að fá hitaveitu. Rætt er við Magnús B. Jónsson, sveitarstjóra um hitaveituverkefnið. Fréttainnslagið má sjá hér.

Fleiri fréttir