Hús við Réttarvatn til sýnis
Á vef Norðanáttar er sagt frá því að Hollvinafélag Víðidalstunguheiðar verður með hús til sýnis við Réttarvatn á Arnarvatnsheiði n.k. sunnudag 11. ágúst. Húsið ber nafnið Hliðskjálf og hefur verið í endurbyggingu félagsins.
Nú sér fyrir endann á endurbyggingunni og því verður húsið til sýnis. Jafnframt verður afhjúpað söguskilti sem félagið hefur sett upp við húsið.
Hollvinafélagið hvetur fólk til að fá sér bíltúr á sunnudaginn, en ágætur jeppavegur er á staðinn upp úr Austurárdal í Miðfirði.
Um vatnið orti Jónas Hallgrímsson:
Efst á Arnarvatnshæðum
oft hef ég fáki beitt
Þar er allt þakið í vötnum,
þar heitir Réttarvatn eitt.
Og undir norðurásnum
er ofurlítil tó,
og lækur líður þar niður
um lágan hvannamó.
Á engum stað ég uni
eins vel og þessum mér.
Ískaldur Eiríksjökull
veit allt, sem talað er hér