Hvað er að ske!?
feykir.is
Hr. Hundfúll
07.09.2015
kl. 16.52
Herra Hundfúll eru hamingjusamur með gengi íslenska landsliðsins í fótbolta. Hvaða snilld er það að liðið sé komið í úrslitakeppni Evrópumótsins í Frakklandi næsta sumar? Hver hefði nú reiknað með þessu þegar Lars og Heimir tóku við liðinu fyrir fjórum árum?
Herra Hundfúll er farinn að óttast það að þurfa að taka upp nafnið Mr. Meiriháttar. En þá getur hann auðvitað alltaf talað um veðrið. Hversu ömurlegt er það búið að vera? Já, það má alltaf stóla á íslenska sumarið.