Hvalreki á Tannstaðabakka
Á laugardaginn rak hval á land við Tannstaðabakka í Hrútafirði. Um er að ræða kvendýr, um 10 metra langa hrefnu. Guðmundur Ísfeld, bóndi og handverksmaður að Jaðri, smellti myndum af hrefnunni og deildi með Norðanátt, en þaðan er myndin fengin.
Hrefna (einnig nefnd hrafnreyður, hrafnhvalur og léttir) er sjávarspendýr af ætt reyðarhvala eins og hnúfubakur, langreyður, sandreyður og steypireyður.
Hrefnum er skipt í tvær tegundir, önnur tegundin er algeng á norðurhveli jarðar (Balaenoptera acutorostrata) og hin tegundin lifir nálægt suðurskautinu og á suðurhveli jarðar (Balaenoptera bonaerensis). Hrefnur á norðurhveli eru svo flokkaðar í þrjá undirtegundir sem eru hrefnur af Mið-NorðurAtlandshafsstofni (MI), hrefnur í Norður-Kyrrahafi og dverghrefnur.
Líkami hrefnu er straumlínulaga og er höfuðið stutt og áberandi frammjótt. Hrefnan er svört eða dökkgrá á baki, gráleit á hliðum og hvít á kvið. Hvít þverrönd á bægslum er eitt aðaleinkenni hrefnu á norðurhveli. Blástur (útöndunargufa) hrefnu sést ekki nema við sérstök skilyrði. Spik liggur í fellingum (rengi) að neðanverðu framan til. Spikfellingarnar eru um 50 til 70 talsins.
Hrefna er næstminnsta tegund skíðishvala og sú minnsta sem heldur sig á norðurhveli. Kvendýr og karldýr eru að meðaltali 6.9 og 7.4 m löng við kynþroska sem verður þegar dýrin ná 5-8 ára aldri. Kýrnar(kvendýrin) eru aðeins stærri en tarfarnir (karldýrin). Tarfar við Ísland verða kynþroska 5 ára, og kvendýr einu ári eldri. Hámarkslengd hrefnu er áætluð frá 9.1 m. til 10.7 m hjá kvendýrum og frá 8.8 m til 9.8 m hjá karldýrum. Bæði kynin vega venjulega 4-5 tonn við kynþroska og hámarksþyngd getur verið 14 tonn. Hrefnur lifa venjulega í 30-50 ár en geta orðið 60 ára. Elsta hrefna sem hefur verið aldursgreind við Ísland var 43 ára tarfur.
Bak, horn og blástursop sjást strax þegar hrefna kemur upp á yfirborðið til að anda. Hrefnur eiga til að koma upp úr djúpinu á mikilli ferð og stökkva skyndilega upp úr sjónum og hafa vegna þess sums staðar fengið nafnið léttir. Hrefnan blæs 3-5 sinnum milli djúpkafana og stingur sér síðan í djúpið. Djúpkafanir vara oftast í 2-5 mínútur en hrefna getur verið allt að 20 mínútur í kafi. Hámarkshraði hrefnu á sundi er áætlaður 20-30 km/klst.