„Hver er þín afsökun“
Boðið verður upp á krabbameinsleit í Skagafirði dagana 12. – 15. maí nk. Að sögn Kristjáns Oddsonar yfirlæknis Leitarstöðvar Krabbameinsfélagsins stefnir í fremur dræma þátttöku og er það miður. Ef frumubreytingar eiga sér stað hjá konum getur það verið lífspursmál að þær greinist áður en það verður um seinan.
„Leghálskrabbameinsleit hefur lækkað dánartíðni leghálskrabbameins um rúmlega 90% frá því leitin hófst fyrir 50 árum. Hún er þannig ein mikilvægasta heilsuvernd sem konur hafa kost á en að meðaltali nýta aðeins 65% kvenna reglulega þessa einstæðu heilsuvernd og ekki nema 50% kvenna undir 30 ára. Regluleg mæting í leghálskrabbameinsleit getur nánast komið veg fyrir leghálskrabbamein,“ segir Kristján Oddson í pistli sínum í 13. tölublaði Feykis.
Nú hafa 403 konum í Skagafirði borist boðsbréf í leghálskrabbameinsleit, í dag hafa 96 konur bókað tíma sem er 24% mæting. Í brjóstakrabbameinsleit hafa 466 konur fengið boðsbréf, 206 hafa bókað tíma eða 44%. Þær konur sem ekki hafa bókað tíma eru hvattar til að taka upp tólið og bóka sér tíma.
Þess má geta að einnig er hægt að panta tíma hjá ljósmóðurinni á Heilbrigðisstofnun Sauðárkróks en hún hefur nýlokið þjálfun í töku leghálssýna. „Nú geta konur á ykkar svæði pantað tíma á Heilbrigðisstofnuninni hjá ljósmóður eða lækni allt árið um kring um leið og þær fá bréf frá Leitarstöðinni. Þannig verður leghálssýnataka ekki bundin við þá einu viku á ári sem Leitarstöðin kemur. Við vonum að konur í Skagafirði nýti sér þessa auknu þjónustu,“ segir Kristján Oddson.
„Hver er þín afsökun?“ Hér að neðan er myndband sem svarar spurningum um leghálskrabbameinsleit af vefnum Krabb.is.
http://youtu.be/ol9itwSjfxQ