Hvernig býr maður til heimsmeistara?

FT norður verður með kennslusýningu í reiðhöllinni Svaðastöðum á Sauðárkróki laugardaginn 28. janúar kl.20.00. Þar munu Jóhann R. Skúlason margfaldur heimsmeistari í tölti og Iben Andersen mæta frá Danmörku. 

Búast má við forvitnilegu námskeiði því Jóhann mun fara yfir töltþjálfun og hvernig á að búa til heimsmeistara og Iben fer yfir nýstárlegar aðferðir í frumtamningum en hún hefur kynnt sér tamningaaðferðir víða að úr heiminum.

Fleiri fréttir