Hvernig við hjálpum að losna undan ofbeldi

Fræðsluþing verður haldið á Sauðárkróki 1. október n.k. um hvernig við hjálpum börnum að losna undan ofbeldi. Þingið er á vegum Vitundarvakningar um kynferðislegt, andlegt og líkamlegt ofbeldi gegn börnum og verður haldið þriðjudaginn 1. október kl. 12.30, í Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, bóknámshúsi.

Allir eru boðnir velkomnir án gjalds. Boðið eru upp á léttan hádegisverð, kaffi og meðlæti. Óskað er eftir að þátttakendur skrái nafn, netfang og vinnustað á netfangið gestamottakan@gestamottakan.is eða í síma 551 1730.

Dagskrá þingsins er eftirfarandi:

12.30     Hádegissnarl

13:00     Vitundarvakning. Kynning á verkefni og vef

13:15     Þórdís Elva Þorvaldsdóttir handritshöfundur. „Fáðu já og annað fræðsluefni – og hvað svo?“.

13:30     Hjördís Þórðardóttir frá UNICEF á Íslandi. „Réttindafræðsla sem forvörn.“

13:45     Kaffi & te.

14:00     Margrét Kristín Magnúsdóttir frá Barnahúsi. „Einkenni þolenda kynferðisbrots.“

14.15     Sólveig Fríða Kjærnested sálfræðingur Fangelsismálastofnun: „Skaðleg kynhegðun barna og klám.“

14:30     Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu. „Rannsókn kynferðisbrota og annarra brota gegn börnum.“

14:45     Kaffi og veitingar.

15:20     Hópastarf og umræður sem fyrirlesarar stýra.

16:20     Stutt samantekt.

16:40     Slit.

Fleiri fréttir