Íbúafundur vegna riðu á Norðurlandi vestra

Íbúafundur vegna riðu í Vatnsneshólfi verður haldinn í kvöld, fimmtudaginn 26. febrúar, kl. 20:30 í Félagsheimilinu á Hvammstanga þar sem farið verður yfir stöðu mála með bændum.

Fulltrúar frá Matvælastofnun og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu verða á fundinum og mun Jón Kolbeinn Jónsson, settur héraðsdýralæknir Matvælastofnunar í Norðvesturumdæmi, fara yfir málið og svara spurningum fundarmanna. Gunnar Ríkharðsson hjá Búnaðarsambandi Húnaþings og Stranda verður fundarstjóri.

Fleiri fréttir