Iðnaðarmenn á fullu við samlagsbyggingu
Það var lítið vetrarveður í dag á Norðurlandi vestra og sunnanvindur með jákvæðum hitatölum gerðu sitt besta til að skófla snjónum í burtu.
Þess má geta að reiknað er með ansi snörpum sunnanvindi í nótt og fram eftir morgni sunnudags, um 20 m/sek snemma í fyrramálið og 10 stiga hita.
Á Sauðárkróki nýttu iðnaðarmenn tækifærið í dag og unnu við steypuvinnu á þaki nýrrar samlagsbyggingar Mjólkursamlags KS.
Ljósmyndari Feykis náði nokkrum myndum af framkvæmdum upp úr hádegi og einnig nokkrum leysingamyndum.