Inflúensan færist í aukana
Inflúensan færist í aukana og tilkynningum um inflúensulík einkenni fer fjölgandi en samkvæmt heimasíðu landlæknis hófst inflúensan um svipað leyti fyrir ári síðan.
Það sem af er vetri hefur inflúensa A(H3) verið staðfest Sauðárkróki, einnig á Akranesi, Húsavík og höfuðborgarsvæðinu.
Einkenni inflúensunnar koma oftast snögglega með háum hita, skjálfta, höfuðverk, beinverkjum, þurrhósta og hálssærindum.
Nánari upplýsingar má finna á influensa.is