Ingibjörg og Reynir sterkust í Húnaþingi vestra

Grettisbikarinn, aflraunakeppni karla og kvenna, fór fram á Grettishátíðinni sunnudaginn s.l. við Grettisból á Laugarbakka. Keppt var í fimm þrautum; bíldrætti, hleðslugrein, axarlyftu, steinatökum og bændagöngu.

Það voru sautján keppendur sem hófu keppni; níu konur og átta karlar. Veitt voru verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í karlaflokki og kvennaflokki en auk þess var keppt um Grettisbikara í hvorum flokki fyrir sig. Til að hljóta Grettisbikarana og titilinn sterkasti karlmaður og kvenmaður Húnaþings vestra þarf viðkomandi að fá flest stig þeirra keppenda sem eiga lögheimili í Húnaþingi vestra.

Í kvennaflokki varð Ingibjörg Jónsdóttir í 1. sæti, Agnes Jónsdóttir í 2. sæti og Ásdís Írena Sigurðardóttir í 3. sæti. Ingibjörg Jónsdóttir hlaut Grettisbikarinn í kvennaflokki og titilinn sterkasti kvenmaður Húnaþings vestra.

Í karlaflokki varð Reynir Ingi Guðmundsson í 1. sæti, Kristján R. Guðnason í 2. sæti og Aðalsteinn Grétar Guðmundsson í 3. sæti. Reynir Ingi Guðmundsson hlaut Grettisbikarinn í karlaflokki og titilinn sterkasti karlmaður Húnaþings vestra. Norðanátt.is segir frá þessu.

Fleiri fréttir