Ísjaki á Skagafirði
Myndarlegur ísjaki lónir nú úti fyrir ströndinni rétt norðan Mallands á Skaga í Skagafirði og hafa nokkrir minni jakar fylgt honum inn fjörðinn sem nú eru komnir uppundir fjöru. Ekki hefur heyrst neitt um það að hvítabirnir hafi þvælst með en Stefán Vagn Stefánsson yfirlögregluþjónn á Sauðárkróki hafði ekki haft veður af jökunum þegar Feykir hafði samband fyrr í dag. Sagði hann að málið yrði kannað nánar.
Í eftirlitsflugi TF-GNA, þyrlu Landhelgisgæslunnar í gærkvöldi, varð vart við fjóra Borgarísjaka úti fyrir Vestfjörðum:
66°24,68N – 021°53,70V - 11,6 sml austur af Hornbjargsvita, 7 sml næst landi, mjög stór
66°31,30N – 023°09,68V - 6 sml NNV af Straumnesi
66°38,19N – 023°15,22V - 13,2 sml NNV af Straumnesi
66°43,66N – 022°50,96V - 19 sml NNA af Straumnesi
Töluvert var um klakahröngl nálægt þeim segir á heimasíðu Veðurstofunnar.