Ísmót á Gauksmýrartjörn á laugardagin
feykir.is
Hestar, Vestur-Húnavatnssýsla
23.01.2014
kl. 18.00
Næstkomandi laugardag, 25. janúar, standa Sveitasetrið Gauksmýri og Hestamannafélagið Þytur fyrir sameiginlegu ísmóti á Gauksmýrartjörn og hefst mótið kl. 12:30. Samkvæmt vefsíðu Þyts er spegilsléttur ís á tjörninni.
Keppt verður í tölti í 3 flokkum:
1. 1.flokki
2. 2.flokki
3. Barna og unglingaflokki.
Einnig verður keppt í unghrossaflokki ef næg þátttaka fæst. Nánari upplýsingar um fyrirkomulag mótsins er að finna á vef Þyts.