Israel Martin næsti þjálfari Tindastóls

Stjórn Körfuknattleiksdeildar Tindastóls hefur sent frá sér fréttatilkynningu þess efnis að nýr þjálfari hefur verið fenginn til liðs við félagið, Spánverjinn Israel Martin, en hann hefur ritað undir þriggja ára samning við Tindastól. Hann mun þjálfa meistaraflokk karla og drengja- og unglingaflokk.

Samkvæmt tilkynningunni bindur stjórn körfuknattleiksdeildar miklar vonir við Martin en hann er með mikla reynslu af þjálfun að baki. Síðastliðin 14 ár hefur hann verið þjálfari á Spáni, þar af 7 ár hjá Tenerife þar sem liðið var byggt upp og komst í efstu deild þar í landi.

Eftir Tenerife færði hann sig yfir til Kanaríeyja og varð aðstoðarþjálfari þar með fyrrum þjálfara spænska landsliðsins, og saman komu þeir liðinu í efstu deild á Spáni.

„Í vetur hefur Martin verið yfirþjálfari í Kosovo hjá liðinu Trepca sem spilar í superleague og hefur náð góðum árangri þar, stýrði meðal annars stjörnuleik þar í gærkvöldi,“ segir í tilkynningunni.

Samningurinn við Martin var undirritaður af formanni körfuknattleiksdeildar um það bil 83 sjómílur norðvestur af hornbjargi, á vinnustað formannsins. „Telst það líklega til einsdæmis að samningur við þjálfara sé undirritaður á þeim slóðum,“ segir í tilkynningunni.

Loks leggur stjórn körfuknattleiksdeildar ríka áherslu á að haldið verði áfram að byggja upp liðið og telur hún að Martin sé klárlega maðurinn í það verkefni.

 

Fleiri fréttir