íþrótta- og tómstundafulltrúi óskast

Húnaþing vestra leitar að áhugasömum og framsæknum einstaklingi til að sinna starfi íþrótta- og tómstundafulltrúa. Starf íþrótta- og tómstundafulltrúa er 80% og er æskilegt að umsækjandinn geti hafið störf þann 1. apríl næst komandi.

Helstu verkefni eru; :

Forstöðumaður Íþróttamiðstöðvar Húnaþings vestra.

Forstöðumaður Félagsmiðstöðvarinnar Óríon.

Fulltrúi í Stýrihópi um forvarnir í Húnaþingi vestra.

Starfsmaður menningar- og tómstundaráðs.

Vaktaskylda í íþróttamiðstöð og félagsmiðstöð er hluti af skilgreindu starfshlutfalli.

Önnur verkefni á sviði íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsmála.

Hæfniskröfur:

Menntun og reynsla á sviði íþrótta- og/eða æskulýðsmála.

Góðir samskiptahæfileikar.

Sjálfstæði og öguð vinnubrögð.

Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi.

Rekstrar og/eða stjórnunarreynsla er æskileg.

Umsækjandi þarf að geta staðist hæfniskröfur sem gerðar eru til starfsmanna sundstaða.

Fleiri fréttir