Jafntefli hjá stelpunum í gærkveldi
feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir
30.07.2013
kl. 11.45
Meistaraflokkur kvenna hjá Tindastóli mætti liðsmönnum Fram í Reykjavík í gærkveldi. Bryndís Rún Baldursdóttir kom Stólunum yfir á 35. mínútu, en á 70. mínútu jafnaði Dagmar Ýr Arnardóttir metin fyrir Framstúlkur. Lokatölur leiksins 1 – 1.
Þetta var síðasti leikur Carolyn Polcari með liði Tindastóls á þessu tímabili, en hún var kölluð út í viðtal vegna læknanáms sem hún er að fara í.