Jafnvægi verndunar íslenskra sela og hagnýtingar þeirra við selaskoðun
feykir.is
Skagafjörður
16.03.2015
kl. 16.24
Sandra M. Granquist heldur fyrirlestur á Hólum í Hjaltadal, fimmtudaginn 19. mars, undir yfirskriftinni: Þverfaglegar rannsóknir á náttúrulífs ferðamennsku - Jafnvægi verndunar íslenskra sela og hagnýtingar þeirra við selaskoðun. Sandra er sérfræðingur við Selasetur Íslands.
Fyrirlesturinn er hluti af Vísindi og graut, árlegri fyrirlestraröð ferðamáladeildar Háskólans á Hólum. Hann hefst kl. 11:00 í stofu 302 í Hólaskóla.
„Áhugasamir hjartanlega velkomnir!“ segir loks í fréttatilkynningu.