Jóla barnaball Lions
feykir.is
Skagafjörður
25.12.2013
kl. 09.39
Jóla barnaball Lions verður haldið á sal Fjölbrautaskólans á Sauðárkróki laugardaginn 28. desember kl 16:00. Allir eru boðnir hjartanlega velkomnir, börn sem fullorðnir. Nemendur í 10. bekk Árskóla syngja og dansa við jólatéð. Jólasveinarnir koma með glaðning. Öll börn fá kveðjugjöf.
Það eru Lionsklúbbarnir Björk og Lionsklúbbur Sauðárkróks sem halda ballið og njóta til þess stuðnings ýmissa fyrirtækja, einstaklinga og velunnara á svæðinu.