Jólastemning á Kirkjutorginu - Myndband
feykir.is
Skagafjörður
05.12.2013
kl. 11.09
Fín jólastemming var í gamla bænum á Króknum laugardaginn 30. nóvember sl. þegar jólaljósin voru tendruð á jólatrénu á Kirkjutorgi. Skólakór Varmahlíðarskóla söng nokkur jólalög undir stjórn Helgu Rósar Sigfúsdóttur, Ásta Björg Pálmadóttir sveitarstjóri flutti hátíðarávarp, nemendur í 2. bekk Grunnskólans austan Vatna tendruðu loks ljósin áður en jólasveinarnir mættu og kættu smáfólkið. Sólveig Fjólmundsdóttir söng, kynnti dagskrá og sá um að allt færi vel fram á torginu.
Hér fyrir neðan má sjá hvernig stemningin var á Kirkjutorginu þennan ágæta laugardag.
https://www.youtube.com/watch?v=OodN11WfQF8