Jólasveinapósthús á Sauðárkróki
feykir.is
Skagafjörður
20.12.2013
kl. 11.13
Í auglýsingu 3. flokks drengja í fótbolta sem birtist í Sjónhorninu er ekki rétt farið með verð á útburði á jólakortum sem borin verða í hús á Sauðárkróki á þeirra vegum. Hvert kort kostar 50 krónur en ekki 25 krónur.
Tekið er á móti kortum í anddyri Skagfirðingabúðar í dag og á morgun, laugardag frá klukkan 14 – 18 og á Þorláksmessu frá 12 – 15. Kortin verða svo borin út milli klukkan 16 og 19 á Þorláksmessu.