Jólatrjáasalan að hefjast hjá Húnum
feykir.is
Vestur-Húnavatnssýsla
10.12.2013
kl. 08.28
Björgunarsveitin Húnar eru að undirbúa sig fyrir sína árlegu jólatrjáasölu enda stutt til jóla en sveitin verður með jólatré við allra hæfi í Húnabúð og verður opið eftirtalda daga fram að jólum.
- Föstudaginn 13. des 16 - 19
- Laugardaginn 14. des 13 - 16
- Sunnudaginn 15. des 13 - 16
Ef einhverjir ná ekki að nýta opnunartímana dagana 13.-15. des. er velkomið að hafa samband við Pétur í síma 895 1995 eða Gunnar Örn í síma 858 9216 og þeir munu opna fyrir þá.