Jón Þorsteinn hlaut styrk frá Samfélagssjóði Valitor
Fram kemur á heimasíðu Valitor að Samfélagssjóður Valitor veitti fimm styrki í gær en hlutverk sjóðsins er að styðja við vandlega valin málefni sem bæta mannlíf og efla. Á meðal þessara fimm aðila sem hlutu styrk var tónlistarséníið skagfirska, Jón Þorsteinn Reynisson, en hann hlaut styrk til að stunda harmonikunám við Det Kongelige Danske Musikkonservatorium í Kaupmannahöfn.
Það var stjórn sjóðsins sem afhenti styrkina en hana skipa Guðmundur Þorbjörnsson, stjórnarformaður Valitor, Viðar Þorkelsson, forstjóri Valitor og Kristján Þór Harðarson, framkvæmdastjóri Markaðs- og viðskiptaþróunar Valitor.
Sjóðurinn var stofnaður fyrir 21 ári og hafa frá upphafi verið veittir samtals 153 styrkir til einstaklinga og samtaka sem láta til sín taka á sviði menningar-, mannúðar-, samfélags- og velferðarmála.