Kaffihús í Hamarsbúð á Vatnsnesi í sumar

Á Norðanátt.is er sagt frá því að í síðustu viku hafi Selasigling og Húsfreyjurnar á Vatnsnesi undirritað samning um leigu á Hamarsbúð á Vatnsnesi í sumar. Þar mun Selasigling reka kaffihús. Kaffihúsið opnar á morgun, fimmtudag og verður opið út sumarið.

Kjartan Sveinsson, einn af eigendum Selasiglingar, segir í samtali við Norðanátt  hugmyndina hafa kviknað þegar fregnir bárust af því að ekkert kaffihús yrði á Illugastöðum í sumar. Fannst þeim ótækt að engin starfsemi yrði í Hamarsbúð svo þau ræddu við Húsfreyjurnar á Vatnsnesi, sem tóku svo vel í hugmyndina og var samkomulagi náð um leiguna.

"Okkar hugsun er fyrst og fremst að auka þjónustuna við ferðamenn á Vatnsnesi og fjölga áningastöðum.", segir Kjartan. "Þetta verður kaffihús þar sem hægt verður að fá nokkrar kaffitegundir, kakó, te og bakkelsi sem verður bakað á staðnum", bætir hann við. "Hamarsbúð er einstaklega vel staðsett kaffihús alveg niður í fjöru og það er meiriháttar upplifun að sitja úti og hlusta á sjóinn og lífríkið þarna."

Fleiri fréttir