Kaffihús, listsýningar og trúbbakvöld
Sæluvika Skagfirðinga æðir áfram, enda gerir tíminn það jafnan þegar mikið er um að vera. Í dag standa yfir myndlistarsýningar, kaffiboð og kaffihús og í kvöld verður hið svokallaða trúbbakvöld á Kaffi Krók.
Í Sauðárkróksbakarí stendur yfir myndlistarsýning nemenda efsta stigs Árskóla sem opin er alla Sæluvikuna á opnunartíma bakarísins. Steinsnar frá, í Gúttó, er samsýning listamanna í myndlistarfélaginu Sólon úr Skagafirði og nágrenni sem ber heitið Litbrigði samfélags 2014 og er hún opin kl. 16-19 í dag. Þriðja myndlistarsýningin er í austuranddyri Farskólans við Faxatorg og kallast hún Andblær. Þar eru sýndar vatnslitamyndir sem gerðar voru á námskeiði á vegum Farskólans.
Í morgun sýndu eldri leikskólabörn verk sín á Listahátíð barnanna í Sæluviku og heldur hún áfram við Víðigrund kl. 15-16 í dag. og yngstu nemendur Árskóla buðu eldri borgurum í árlegt Sumarsælukaffi. Einnig stendur sölusýning á verkum þjónustuþega Iðju-Hæfingar yfir í Landsbankanum og verður hún opin til kl. 16 í dag.
Árlegt sundmót Kiwanis og Sunddeildar Tindastóls verður í Sundlaug Sauðárkróks kl 17 í dag. Ólafshús bíður upp á þriggja rétta kvöldverð í Sæluviku og er opið fyrir hann frá kl. 18:00. Þá verður Sauðárkróksbakarí með Kósí kaffihúskvöld frá kl 20-23 þar sem framtíðarsnillingar Skagafjarðar koma fram. Þessu Sæluvikukvöldi lýkur svo með trúbbakvöldi á Kaffi Króks sem hefst kl. 22:00.