Kaleo á Króknum á laugardag

Nemendafélag FNV stendur fyrir tónleikum með hljómsveitinni Kaleo laugardaginn 3. maí nk. kl. 18:30. „Allra heitasta hljómsveit landsins í dag,“ segir í fréttatilkynningu frá NFNV. 

„Hljómsveitin Kaleo er skipuð þeim Jökli, Rubin, Daníel og Davíð en þeir koma úr Mosfellsbæ og hafa spilað saman frá unga aldri. Hljómsveitin hefur notið mikilla vinsælda undanfarið með lögum eins og Vor í Vaglaskógi og Rock 'n' Roller sem flestir ættu að kannast við, “ segir í fréttatilkynningu.

Hljómsveitin hefur hlotið fjölda verðlauna undanfarið s.s nýliðar ársins, plata ársins og söngvari ársins á Hlustendaverðlaunum FM957.

Miðverð er 1500 kr. fyrir meðlimi NFNV en 2000 kr. fyrir aðra.

 

Fleiri fréttir