Kanínubúinu að Syðri-Kárastöðum bjargað
Söfnun Birgit Kositzke, kanínubónda til bjargar búi sínu Syðri-Kárastöðum í Húnaþingi vestra, lauk á Karolina Fund þann 15. janúar síðastliðinn. Birgit lagði upp með að safna 3000 evrum en niðurstaðan var að 4.819 evrur söfnuðust, tæp 700 þúsund, en 91 aðili lét fé af hendi rakna. Rætt er við Birgit á Dv.is.
„Það var sérstaklega ánægjulegt hversu margir frá Hvammstanga og nærliggjandi stöðum studdu við bakið á mér, peningarnir eru aukaatriði þegar maður finnur fyrir slíkum stuðningi,“ sagði Birgit.
Aðspurð um næstu skref segir hún að forgangsverkefni sé að finna samstarfsaðila til þess að hluta niður kanínukjötið. Hún slátrar dýrunum á sláturhúsi á Hvammstanga en fær ekki aðgang að kjötvinnslunni þar til að vinna kjötið áfram. „Sláturhúsið slátrar fyrir Bandaríkjamarkað og samstarfsaðilar þar ytra vilja ekki að vinnsla á öðru kjöti fari fram nálægt þeirra vörum.“
Birgit sagði í samtali við blaðamann DV að ætlunin sé að fjölga sláturdýrum, bæta enn frekar aðstöðu dýranna, gera betrumbætur í loftræstimálum. Einnig vill Birgit freista þess að fá kanínurækt formlega viðurkennda sem landbúnaðargrein á Íslandi. Þá ætlar hún jafnframt að leggja áherslu á markaðs- og kynningarstarf og liður í því er að koma sútuðum kanínuskinnum á framfæri. „Þau eru sútuð á Sauðárkróki og þetta er úrvalsvara. Áhugasamir fatahönnuðir mega endilega hafa samband,“ segir Birgit loks í viðtalinu.