Katta- og hundaeigendur beðnir að fylgjast með dýrum sínum
feykir.is
Skagafjörður
08.05.2020
kl. 11.08

„Eigendum og umráðamönnum katta ber að taka tillit til fuglalífs á varptíma og eftir atvikum takmarka útiveru katta, m.a. að næturlagi," segir í samþykkt um hunda- og kattahald í Sveitarfélaginu Skagafirði.
Sveitarfélagið Skagafjörður vekur athygli á því á vef sínum að varptími fugla er hafinn og biður hunda- og kattaeigendur að taka tillit til þess. Þeim tilmælum er beint til kattaeigenda að halda köttum sínum innandyra á nóttunni og hengja bjöllur á hálsólar þeirra. Kettir eru mikil veiðidýr öflug dýr sem geta haft neikvæð áhrif á stofn fugla sem verpa í nágrenni við mannabústaði ár hvert og því er mikilvægt að kattaeigendur fylgist með köttum sínum yfir varptíma fugla og á meðan ungar eru að verða fleygir.
Þá eru hundaeigendur eru beðnir um að sleppa ekki hundum sínum lausum á varpsvæðum.
Samþykkt um hunda- og kattahald í Sveitarfélaginu Skagafirði má finna hér.