Keflvíkingar lögðu Tindastólsmenn í Lengjubikarnum

Keflvíkingar unnu öruggan sigur á liði Tindastóls í Fyrirtækjabikar KKÍ og Lengjunnar en leikið var í Keflavík í gærkvöldi. Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik en í síðari hálfleik skildu leiðir og lokatölur voru 97-74.

Í umfjöllun Körfunnar.is segir að leikurinn hafi verið ágæt skemmtun en haustbragur hafi verið á leik beggja liða. Þrátt fyrir nokkuð stórt tap hafi Stólarnir virkað sterkir af 1. deildar liði að vera og ættu ekki að dvelja nema einn vetur niðri í 1. deild.

Heimamenn í Keflavík höfðu yfirhöndina nánast allan leikinn en í hálfleik munaði sjö stigum á liðunum. Keflvíkingar tóku hressilega á því í þriðja leikhluta og skópu sér 20 stiga forystu sem Stólunum gekk illa að vinna á og á endanum urðu strákarnir að sætta sig við 23 stiga tap. Stigahæstir hjá Keflvík voru Darrell Lewis og Magnús Þór Gunnarsson sem báðir skoruðu 23 stig en Anthony Proctor var atkvæðamestur Tindastólsmanna með 20 stig og 7 fráköst.

Þetta var annar leikur Tindastóls í Fyrirtækjabikarnum en Stólarnir eru sem kunnugt er handhafar bikarsins eftir glæsilega frammistöðu síðasta haust. Stólarnir sigruðu á föstudag Íslandsmeistara Grindavíkur hér heima af fádæma öryggi en líkt og í fyrra hefst keppnin á því að spilað er í fjögurra liða riðlum en auk Grindavíkur og Keflavíkur eru Valsmenn í riðli með Tindastóli.

Fleiri fréttir