Kór MH á ferð um Strandir og Húnaþing vestra
Kór Menntaskólans við Hamrahlíð hélt opna tónleika, tvenna skólatónleika og söng á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Hvammstanga á tónleikaferðalagi sínu um Strandir og Húnaþing vestra um síðustu helgi. Skólatónleikarnir voru í Skólabúðunum á Reykjum og Grunnskóla Húnaþings vestra.
Stjórnandi kórsins, Þorgerður Ingólfsdóttir, hóf tónlistarkennslu við Menntaskólann við Hamrahlíð á öðru starfsári skólans árið 1967 og stofnaði hún þá Kór Menntaskólans við Hamrahlíð. Kórnum hefur Þorgerður stjórnað óslitið síðan. Kórinn skipa nemendur á aldrinum 16-20 ára og eru þeir 81 talsins á þessari skólaönn.
Á vef Norðanáttar er sagt frá opnu tónleikunum í félagsheimilinu á Hvammstanga. „Skemmtileg stemmning myndaðist í forsal félagsheimilisins að loknum tónleikum, en þar söng kórinn aukalag og óskalög frá tónleikagestum. Elínborg Sigurgeirsdóttir þakkaði fyrir tónleikana og sagði frá starfi sínu við Tónlistarskóla Húnaþings vestra og tónlistarlífinu í héraðinu. Þá vakti Garðar Hannesson hrifningu Þorgerðar kórstjórnanda fyrir að syngja með í lögum kórsins, en Garðar er 92 ára að aldri. Þorgerður hvatti kórfélagana til að feta í spor Garðars þegar þau næðu hans aldri,“ segir í frétt á Norðanátt.is.