Körfuboltadeild Tindastóls er fyrirmyndarfélag
feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir
17.12.2013
kl. 14.09
Fyrir leik Tindastóls og Þórs í fyrstu deild körfuboltans sl. föstudagskvöld á Sauðárkróki var körfuknattleiks Tindastóls afhent viðurkenning sem Fyrirmyndarfélag ÍSÍ. Það var Viðar Sigurjónsson starfsmaður Fræðslusviðs ÍSÍ sem heiðraði deildina með undirrituðu skjali sem staðfesti að öllum skilyrðum væri uppfyllt til að öðlast þennan heiður.
Unglingadeildin hafði áður fengið þessa viðurkenningu en nú er það öll deildin sem hana hlýtur. Það voru þau Stefán Jónsson formaður, Hafdís Einarsdóttir og Eiríkur Loftsson sem tóku við viðurkenningunni ásamt fríðum hópi barna sem eflaust eiga eftir að gera garðinn frægan á körfuboltavöllum landsins í framtíðinni.