Körfuboltadeildin fyrirmyndarfélag
Fyrir leik Tindastóls og Þórs Akureyri í fyrstu deildinni í körfubolta í kvöld mun Viðar Sigurjónsson starfsmaður Fræðslusviðs ÍSÍ veita körfuboltadeild Tindastóls viðurkenningu sem Fyrirmyndarfélag ÍSÍ. Unglingadeildin hafði áður fengið þessa viðurkenningu en nú er það öll deildin sem hana hlýtur. Allir eru hvattir til að mæta í Síkið fyrir klukkan 19:00 og verða vitni að því þegar Stefán Jónsson, Hafdís Einarsdóttir og Eiríkur Loftsson taka við viðurkenningunni áður en leikurinn sem allir hafa beðið eftir byrjar.
Tindastóll er nú eina taplausa liðið í fyrstu deildinni og trónir því á toppnum en Þórsarar töpuðu á móti Hetti á heimavelli í síðustu umferð. Leikurinn hefst samkvæmt venju kl. 19:15.