Kormákshlaupið hófst í blíðviðri

Fyrsta götuhlaup Umf. Kormáks af fjórum fór fram í gær, sumardaginn fyrsta, í þrettán gráðu hita og brakandi blíðu, að því er fram kemur á vefnum Norðanátt. Hlaupið var frá félagsheimilinu á Hvammstanga í þremur hollum eftir vegalengdum; 300m, 600m og 800m.

Í Kormákshlaupinu er keppt um þrenn verðlaun í hverjum flokki, karla og kvenna. Til að eiga möguleika á verðlaunum fyrir sæti þurfa keppendur að taka þátt í þremur hlaupum af fjórum og ræður þá tími í þremur hlaupum röð keppenda.

Fleiri fréttir