Kosningakaffi Samfylkingarinnar
Samfylkingin býður til kosningakaffis í Félagsmiðstöðinni Órion, Höfðabraut 6 Hvammstanga, frá klukkan 14:00 til 18:00 á kjördag 27. apríl. „Njótið dagsins og kíkið við í kosningakaffi,“ segir í fréttatilkynningu.
Þeir sem óska eftir akstri að og frá kjörstað eða annarri aðstoð eða upplýsingum varðandi kosningarnar er bent á að hringja í síma 893 4378.