Kraftur 2013 um helgina

Útivistar- og sportsýningin Kraftur 2013 verður haldin í Reiðhöllinni Svaðastöðum við Sauðárkrók um helgina, 16.-17. Nóvember. Opið verður kl 11-19 á laugardag og 11-16 á sunnudag. Að vanda verður mikið um dýrðir á sýningunni og margir áhugaverðir viðburðir á meðan á henni stendur.

Haldið verður uppboð til styrktar Björgunarsveitunum í Skagafirði kl 15 á laugardag, þar sem t.d. verður boðið upp sæti aðstoðarökumanns á sérleiðinni Nafir í Skagafjarðarralli 2014. Hið sama verður í vinning þegar dregið verður úr nýliðaumsóknum í Bílaklúbb Skagafjarðar .

Hægt verður að koma og prófa að skjóta af boga og kl 14-17 á laugardag verður boðið upp á myndatöku fyrir börn á tækjum. Veitingasala á staðnum verður til styrktar Björgunarsveitunum í Skagafirði. Sýningin höfðar til allra aldurshópa og er aðgangur ókeypis.

Fleiri fréttir