Kristinn Snjólfsson fótbrotinn eftir vinnuslys

Kristinn Snjólfsson leikmaður Tindastóls/Hvatar leikur ekki meira með liðinu á þessu tímabili en pilturinn fótbrotnaði í vinnuslysi í fyrradag. Leikmenn og stjórnir Tindastóls/Hvatar senda honum bestu kveðjur á heimasíðu Tindastóls með óskum um góðan og skjótan bata.

Tindastóll/Hvöt á næst leik nk. laugardag á móti Hetti en sá leikur er auglýstur sérstaklega sem liður í Húnavöku og má búast við því að fjölmennt verði í áhorfendastúkunni. Tindastóll/Hvöt siglir nú um miðja deild með 16 stig en fá stig skilja liðið frá því efsta en þar trónir Hamar með 24 stig

Fleiri fréttir