Kristján Jóhannsson syngur á Hólahátíð

Nú er verið að leggja lokahönd á undirbúning Hólahátíðar og 250 ára afmælis elstu steinkirkju landsins, Hóladómkirkju. Á hátíðinni verður fjölbreytt dagskrá sem hefst kl 17 föstudaginn 16. ágúst og stendur til sunnudagsins 18. ágúst.

Þar má helst nefna er sýningu sem Þorsteinn Gunnarsson og Guðmundur Oddur
Magnússon hafa unnið um sögu kirkjubyggingarinnar, en hún verður opnuð og frumsýnd föstudagskvöldið kl. 20:00 í Auðunarstofu. Sýningin mun ganga alla helgina.

Á laugardag kl. 11:00 verður frumsýnt nýtt leikrit um Sabinsky og kirkjubygginguna eftir Björgu Baldursdóttur kennara, en það eru félagar úr Leikfélagi Hófsóss, sem leika. Leikritið verður sýnt þrisvar yfir helgina, kl.11:00 á laugardagsmorgunn, kl. 14:30 á laugardagseftirmiðdag og kl. 11:00 á sunnudagsmorgunn.

Pílagrímaganga verður yfir Heljardalsheiði á laugardag, rútuferð verður frá Hólum
kl. 7:00 um morguninn og kl 9:30 frá Atlastöðum. Leiðsögumaður verður sr. Guðrún Eggertsdóttir og er skráning í gönguna og allar upplýsingar um hana hjá sr. Gylfa Jónssyni á netfanginu srgylfi@centrum.is. Gengið verður til messu í Gvendarskál kl. 13:00 þar sem sr. Sigríður Gunnarsdóttir predikar og leikið verður á trompet. Auk þess verður á sama tíma gengið í Námuna og getur göngufólk tekið með sér sýnishorn af sandsteininum sem kirkjan var byggð úr. Á laugardag verður einnig unnið með sandsteininn við Auðunarstofu milli kl. 13 og 14 og aftur
milli kl. 16 og 17.

Grill verður við veitingastaðinn Undir byrðunni á laugardagskvöld og hægt verður að kaupa sér mat alla helgina þar á bæ.

Hátíðaguðsþjónusta verður á sunnudag kl. 14:00 þar sem biskup Íslands predikar og Kristján Jóhannsson syngur tvær aríur eftir Handel.  Eftir messuna verður hátíðakaffi í Hólaskóla í boði Hólanefndar. Kl. 16:30 hefst samkoma í kirkjunni þar sem Vilhjálmur Egilsson rektor Háskólans á Bifröst flytur Hólaræðuna og Kristján Jóhannsson syngur einsöng.
Afar brýnt er að fólk panti gistingu sem fyrst þar sem gistirými er takmarkað. Það er hægt að gera með því að senda póst á booking@holar.is, segir í fréttatilkynningu.

 

Fleiri fréttir