Kristrún sigraði söngvarakeppni Húnaþings vestra
Á laugardagskvöldið var Söngvarakeppni Húnaþings vestra haldin með pompi og prakt í Félagsheimilinu á Hvammstanga. Alls tóku þrettán atriði þátt en það var Kristrún Kristjánsdóttir bar sigur úr býtum með laginu Put Your Records On með Corinne Bailey Rae, eins og sagt er frá á Norðanátt.is.
Í öðru sæti varð Hulda Signý Jóhannesdóttir með lagið Sober með Pink, en í bakröddum með henni voru Ingunn Elsa Rafnsdóttir og Aldís Olga Jóhannesdóttir. Í þriðja sæti urðu svo Ingunn Elsa Rafnsdóttir og Elvar Logi Friðriksson, en þau tóku lagið Háskaleikur með Bubba og Grétu Morthens.
Dómnnefnd skipuðu þau Björn Líndal Traustason, Sigurvald Ívar Helgason og Ellinore Andersson. Salurinn kaus svo Bestu sviðsframkomuna og Bestu búningana. Þau verðlaun komu í hlut sama atriðis, en það var Leikskólinn Ásgarður sem hreppti verðlaunin. Leikskólakennararnir sungu lagið Gordjöss með Páli Óskari, en þær voru með eigin texta um lífið innan leikskólans.
Hljómsveitin var skipuð þeim Daníel Geir Sigurðssyni, Guðmundi Hólmari Jónssyni, Kristni Arnari Benjamínssyni og Valdimari Gunnlaugssyni.
Gamli & Valdingjarnir tróðu svo upp áður en úrslitin voru tilkynnt, en þá hljómsveit skipa Valdimar Gunnlaugsson, Daníel Geir Sigurðsson, Skúli Þórðarson, Björn Líndal Traustason og Benóný Þór Björnsson.
Birgir Sævars og hljómsveit sáu svo um að skemmta fram á rauða nótt, við mikinn fögnuð ballgesta.