Króksbrautarhlaupið á laugardaginn

Laugardaginn 21. september nk. lýkur sumarstarfi Skokkhópsins á Sauðárkróki með hinu árlega Króksbrautarhlaupi. Fólk velur sér þá vegalengd sem það ætlar sér að leggja að baki og hleypur á Krókinn á brautinni milli Varmahlíðar og Sauðárkróks. Að þessu sinni verður hlaupið tileinkað ungri stúlku, Selmu Björk Þórudóttur, en hún glímir við ýmis veikindi m.a. flogaveiki og telst vera langveik. Foreldrar hennar eru Þóra Dögg Reynisdóttir og Stefán Ásgrímur Sverrisson.

Boðið er upp á rútuferðir frá Sundlaug Sauðárkróks kl. 9:30 fyrir þá sem lengst fara eða í Varmahlíð en þaðan er um 25 km á Krókinn. Önnur ferð verður kl. 10:30 fyrir þá sem velja sér styttri vegalengd eða lengst í Kjartansstaði en þaðan er um 15 km. Rútugjaldið er þúsund kall sem rennur beint í söfnunina þar sem Suðurleiðir aka án gjaldtöku. Drykkjarstöðvar verða á hefðbundnum stöðum, Glaumbæ, Melsgili og Bergstöðum.

Árni segir að æskilegt sé fyrir hlaupara að klæðast áberandi fatnaði og ferðast á móti umferðinni. Það á líka við um hjólafólkið þegar það hjólar samsíða hlaupurunum þó svo það stríði gegn reglum en það sé gert til að bílar eigi greiða leið framhjá þátttakendum.

Hægt er að hlaupa, ganga, hjóla eða koma sér áfram á annan hátt til að vera með, segir Árni en hann veitir allar upplýsingar um hlaupið í síma 8643959.

HÉR er hægt að nálgast myndir frá hlaupinu í fyrra.

Fleiri fréttir