Krummi krunkar úti með Kammerkórnum - Myndband

Jólablað Feykis er komið út, stútfullt af skemmtilegu efni fyrir alla og á það að berast inn á öll heimili á Norðurlandi vestra áður en langt um líður. Einnig verður hægt að skoða blaðið á Feykir.is. Meðal efnis er stór uppskriftaþáttur þar sem meðlimir Skagfirska kammerkórsins laða fram góðgæti fyrir jólin. Kórinn brást af sjálfsögðu í söng þegar verið var að mynda kökurnar fyrir blaðið og sem betur fer náðist söngurinn á myndband sem hægt er að sjá hér að neðan.

https://www.youtube.com/watch?v=gXzIxXUXb9U

Fleiri fréttir