KS úthlutar menningarstyrkjum

Í gær var úthlutað styrkjum úr Menningarsjóði Kaupfélags Skagfirðinga. Alls hlutu 24 aðilar styrki til menningarverkefna eða menningarstarfsemi. Styrkirnir eru veittir tvisvar á ári, snemma sumars og í árslok.

Eftirfarandi aðilar hlutu styrki að þessu sinni:

Skagfirski kammerkórinn       

Fjárstuðningur vegna starfsemi kórsins.

 

Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps       

Fjárstuðningur vegna söngdagskrár með lögum Geirmundar Valtýssonar er ber nafnið “Lífsdans Geirmundar Valtýssonar“.

 

Sönghópur félags eldri borgara       

Fjárstuðningur vegna starfsemi kórsins.

 

Rökkurkórinn      

Fjárstuðningur vegna starfsemi kórsins.

 

Kvennakórinn Sóldís       

Fjárstuðningur vegna starfsemi kórsins.

 

Kirkjukór Sauðárkrókskirkju       

Fjárstuðningur vegna starfsemi kórsins.

 

Karlakórinn Heimir      

Fjárstuðningur vegna mynddisk um frásögn Sturlungu af Örlygsstaðabardaga.

 

Árni Geir Sigurbjörnsson       

Fjárstuðningur vegna söngnáms veturinn 2013-2014.

 

Sigfús Arnar Benediktsson og Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir  

Fjárstuðningur vegna útgáfu plötunar „Tímamót-behind the mountains“.

 

Geirmundur Valtýsson    

Fjárstuðningur vegna útgáfu jólaplötunar „Jólastjörnur“.

 

Helgi Sæmundur Guðmundsson       

Fjárstuðningur vegna útgáfu hljómplötu með hljómsveitinni Úlfur Úlfur.

 

Skíðafélag Ólafsfjarðar       

Fjárstuðningur vegna Sævars Birgissonar skíðagöngumanns.

Sindri Rögnvaldsson        

Fjárstuðningur vegna kostnaðar við að koma fyrir gestabók á toppi Glóðafeykis.

 

Ingibjörg K. Jónsdóttir       

Fjárstuðningur vegna ritunar sögu gamla barnaskólans á Hlíðarhúsinu í Óslandshlíð og úr frá því sögu menntunar í Skagafirði.

 

Forlagið, bókaútgáfa     

Fjárstuðningur vegna útgáfu bókarinnar „Listin að vefa“ eftir Ragnheiði Þórsdóttur.

 

Indriði R. Grétarsson        

Fjárstuðningur vegna kaupa á mörkum fyrir bogfimi vegna Unglingalandsmóts 2014.

 

Lummudagar í Skagafirði      

Fjárstuðningur vegna héraðshátíðar sem fram fer dagana 26-29. júní 2014.

 

Grundarhópurinn       

Fjárstuðningur vegna menningarhátíðarinnar „Listaflóð á vígaslóð“.

 

Skotta kvikmyndafjelag       

Fjárstuðningur vegna sjónvarpsmyndar um Þuríði Hörpu Sigurðardóttur á Sauðárkróki.

 

Félagsskapurinn Pilsaþytur       

Fjárstuðningur vegna kynningar á íslenskum þjóðbúningum sem til stendur að halda í Sæluviku Skagfirðinga næsta vor.

Jón Ormar Ormsson
Fjárstuðningur vegna menningarmála.

 

Rósmundur Ingvarsson       

Fjárstuðningur vegna söfnunar á örnefnum.

 

Krabbameinsfélag Skagafjarðar       

Fjárstuðningur vegna starfsemi félagsins.

 

Hjálparstarf á vegum þjóðkirkjunnar í Skagafirði                 

Fjárstuðningur til stuðnings við hjálparstarf á vegum þjóðkirkjunnar í Skagafirði.

 

Blaðamaður Feykis tók meðfylgjandi myndir við úthlutunina.

 

                                                          

Fleiri fréttir