Kvenfélagskonan á Feykir TV
Dagur kvenfélagskonunnar er 1. febrúar ár hvert. Kvenfélag Sauðárkróks ákvað í tilefni dagsins að vera með opið hús í Skátaheimilinu. Þar gátu komið konur og karlar og fengið tilsögn í að festa rennilása, stytta pils og buxur, fatabreytingar, prjóna sokkahæla og annað í þeim dúr. Einnig voru þær með veitingar sem er liður í fjáröflun, enda hefur markmið félagsins að styrkja líknar - og menningarmál ýmiskonar og láta gott af sér leiða.
Ávallt hefur verið leitast við að fylgja tíðarandanum hverju sinni til þess að allar konur geti fundið eitthvað við sitt hæfi. Þess vegna breytast áherslur félagsstarfsins eins og þjóðfélagið. Því er ekkert til fyrirstöðu að ungar og kraftmiklar konur bætist í hóp þeirra sem fyrir eru og taki þátt í því skemmtilega og góða starfi Kvenfélags Sauðárkróks.
http://www.youtube.com/watch?v=XlPMTJeBm7M