Kvennatölt Norðurlands á skírdag
Kvennatölt Norðurlands fer fram 24. mars, skírdag, og hefst klukkan 18:00 í Reiðhöllinni Svaðastöðum við Sauðárkrók.
Keppt verður í þremur flokkum; opnum flokki, minna vönum og 17 ára og yngri. Landsbankinn gefur verðlaunagripi kvöldsins og eitt og annað verður í pokahorninu.
Skráning er fyrir klukkan 22:00 í kvöld, þriðjudaginn 22. mars og eiga skráningar að berast á netfangið saragisladottir@gmail.com. Skráningargjald er kr. 1500 og miðaverð 1000 kr, segir í tilkynningu frá Kvennadeild Skagfirðings.