Kvöddu gamla barnaskólahúsið
feykir.is
Skagafjörður
15.11.2013
kl. 08.32
Það var mikið um að vera hjá nemendum og starfsfólki Árskóla á Sauðárkróki í gær en þá var hið nýja skólahús við Skagfirðingabraut formlega tekið í notkun og það gamla við Freyjugötu kvatt með virktum.
Nemendur gengu fylktu liði að gamla skólanum sem hýst hefur nemendur í 65 ár. Í fréttum RÚV í gær var sagt að ekki væri ljóst hvaða hlutverki gamla skólahúsið kemur til með að gegna í framtíðinni en nemendurnir þökkuðu fyrir sig og kvöddu húsið með virktum.
Frétt RÚV er hægt að sjá HÉR