Kvöldvaka á vígaslóð

Listaflóð á vígaslóð heldur áfram í Blönduhlíðinni og í kvöld klukkan 20:30 verður boðið til kvöldvöku í Kakalaskála. Þar verða draugasögur sýndar og sagðar í máli og myndum, tónum og tali. M.a. verður sagt frá Miklabæjar-Sólveigu, Djáknanum á Myrká og Reynistaðabræðrum.

Inn á milli leikur Jón Þorsteinn á harmónikkuna og sérvitringurinn Sölmundur mætir á svæðið. Sömuleiðis er von á Arna í Útvík sem mun kynna afurð sýna. Aðgangseyrir er þúsund krónur.

Fleiri fréttir