Kyrrðardagar á Hólum í Hjaltadal
feykir.is
Skagafjörður
31.10.2013
kl. 11.26
Helgina 8.-10. nóvember næstkomandi verða haldnir kyrrðardagar á Hólum í Hjaltadal. Hefjast þeir kl. 18:00 á föstudag og lýkur kl. 14:00 á sunnudag. Kyrrðardagar höfða til margra sem vilja stíga út úr skarkala hversdagsins og leita þess að styrkja samband sitt við Guð í kyrrð. Á Hólum er boðið upp á uppbúin rúm og hollustufæði, kyrrð, íhugun, útivist og hvíld.
Umsjón með kyrrðardögunum hafa Sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir, vígslubiskup, sr. Guðrún Eggertsdóttir, sjúkrahúsprestur og sr. Gylfi Jónsson, sem sér um tónlistaríhugun. Allar upplýsingar og skráning fást gegnum netfangið holabiskup@kirkjan.is.