Lægsti húshitunarkostnaðurinn á Sauðárkróki

Lægsti húshitunarkostnaðurinn er á Sauðárkróki samkvæmt útreikningum frá Orkustofnun. Byggðastofnun lét reikna út kostnað við raforkunotkun og húsahitun á sömu fasteigninni á nokkrum þéttbýlisstöðum og nokkrum stöðum í dreifbýli á ársgrundvelli.  

Af þeim stöðum sem skoðaðir voru reynist rafmagnsverð hæst hjá notendum RARIK í dreifbýli kr. 102.537. Í þéttbýli er rafmagnsverð hæst á orkuveitusvæði RARIK kr. 78.498. Lægst er rafmagnsverðið á Akureyri kr. 67.859. Hæsta verð í dreifbýli er 51% hærra en lægsta verð í þéttbýli. Í þéttbýli er hæsta verð 16% hærra en lægsta verð.

Að neðan má sjá orkukostnaður heimila á þeim stöðum sem mældir voru á Norðurlandi vestra, samantektina í heild sinni má sjá hér

Staður Hitaveita  Rafhitun  Hitaveita/ Rafmagn  Samtals 
  Fjarvarmav kr./ári Rafhitun Almenn  rafmagn 
  kr./ári     notkun  og hiti 
        kr/ári kr/ári
Blönduós 182.223 0 182.223 78.498 260.720
Hitaveita dreifbýli Norðurland 106.246 0 106.246 102.537 208.783
OR dreifbýli lágmark 3 mín.ltr. 103.526 0 103.526 102.537 206.063
Sauðárkrókur 83.857 0 83.857 78.498 162.355

 

Þegar kemur að húshitunarkostnaðinum er munurinn öllu meiri. Þar er hæsti kyndingarkostnaðurinn á orkuveitusvæði RARIK í dreifbýli og Orkubúi Vestfjarða í dreifbýli kr. 204.817. Í þéttbýli er kostnaðurinn hæstur á dreifiveitusvæði OV þar sem rafmagnshitun er við lýði s.s. Hólmavík kr. 195.092 og dreifiveitusvæði RARIK s.s. í Grundarfirði, Neskaupstað og Vopnafirði kr. 192.965. Lægsti húshitunarkostnaðurinn er á Sauðárkróki kr. 83.857. Hæsta verð í dreifbýli er 144% hærra en lægsta verð í þéttbýli. Í þéttbýli er hæsta verð 133% hærra en lægsta verð.

Ef horft er til heildarkostnaðar þá er kostnaðurinn hæstur í dreifbýli á orkuveitusvæði RARIK kr. 307.354. Heildarkostnaður í þéttbýli er hæstur á dreifiveitusvæði OV s.s. á Hólmavík kr. 272.329 og dreifiveitusvæði RARIK s.s. í  Grundarfirði, Neskaupstað og Vopnafirði kr. 271.463. Lægstur er heildarkostnaðurinn á Akureyri kr. 158.774. Hæsta verð í dreifbýli er því 94% hærra en lægsta verð í þéttbýli. Í þéttbýli er hæsta verð 72% hærra en lægsta verð.

Við útreikninana var almenn notkun og fastagjald tekið saman annarsvegar og hitunarkostnaður hinsvegar en samkvæmt heimasíðu Byggðastofnunar er viðmiðunareignin einbýlishús sem er 161,1 m2 að grunnfleti og 351m. Gjöldin eru reiknuð út samkvæmt gjaldskrá þann 1. apríl 2014.

Tekið er fram að hafa ber í huga að á nokkrum stöðum er veittur afsláttur af gjaldaskár hitaveitu þar sem ekki er hægt að tryggja lágmarkshita vatns til notanda.

Fleiri fréttir