Landsmót hestamanna verður á Hólum sumarið 2016
Fram kemur á heimasíðu Landssambands hestamanna að á fundi stjórnar sambandsins í dag hafi verið ákveðið að Landsmót hestamanna verður haldið á Hólum í Hjaltadal sumarið 2016. Landsmót hestamanna ehf. og Gullhylur ehf. munu á allra næstu dögum undirrita samning um mótshaldið.
Eins og áður hefur komið fram á Feykir.is var skrifað undir viljayfirlýsingu um mótshaldið þann 19. desember 2014.
„Það er virkilega ánægjulegt að þetta mál sé í höfn. Ég er sannfærður um að Landsmót á Hólum í Hjaltadal, þar sem æðsta menntastofnun íslenska hestsins í heiminum er vistuð, mun verða glæsilegt mót og nýtast hestamönnum í nútíð og framtíð vel. Ég er viss um að Skagfirðingar munu taka vel á móti okkur eins og þeim er lagið,” segir Lárus Ástmar Hannesson, formaður LH.