Laugarbakkaskóli fær nýtt hlutverk

Félag í forsvari hjónanna Tómasar Kristjánssonar og Sigrúnar Guðmundsdóttur hefur fest kaup á Laugarbakkaskóla í Miðfirði af Húnaþingi vestra. Samkvæmt vef Húnaþings vestra er ætlunin er að reka þar heilsárshótel auk þess að standsetja fjölnotahús sem nýst getur fyrir ráðstefnur og ýmsar uppákomur.

Um er að ræða skólahús með kennslustofum, heimavist, mötuneyti, íþróttahúsi og íbúðum, auk einbýlishúss og parhúss. Heildarflatamál fasteignanna er tæpir 4.000 fermetrar. Kennsla fluttist frá Laugarbakka til Hvammstanga sl. haust og hefur húsnæðið því ekki verið notað sem slíkt síðan.

Undanfarin ár hefur Hótel Edda rekið sumarhótel að Laugarbakka en fram kemur á vef Húnaþings vestra að nýir eigendur stefna á umfangsmiklar endurbætur á húsnæðinu með það að markmiði að gera húsið heppilegra til hótelreksturs auk þess að standsetja þar fjölnotahús eins og fyrr segir. Gera má ráð fyrir að með rekstri þess skapist 6-8 heilsársstörf og allt að 16 á háannatíma.

„Með fjölgun gistirýma og aukinni þjónustu nýtast núverandi fjárfestingar ferðaþjónustuaðila í sveitarfélaginu betur og ný tækifæri skapast fyrir sveitarfélagið allt,“ segir loks á vef Húnaþings vestra.

Húsnæðið verður afhent nýjum eigendum þann fyrsta október 2015.

Fleiri fréttir