Laus sæti til Njarðvíkur
Meistaraflokkur Tindastóls sækir Njarðvíkinga heim á morgun fimmtudaginn 12. janúar til að hirða tvö stig í Iceland Express deildinni og flytja þau norður. Þar sem Tindastólsrútan er í klössun var tekin 30 manna langferðabíll á leigu og eru því 15 sæti laus fyrir áhugasama stuðningsmenn sem vilja fara með.
Þeir sem hyggja á frægðarför með liðinu á Suðurnesin geta haft samband við Geira Eyjólfs í síma 8945832 en lagt verður af stað klukkan 12:30.
Fyrir þá sem ekki komast suður verður leikurinn sýndur beint á Kaffi Krók og hefst hann klukkan 19:15.